Mínar síður – Nýtt umhverfi 2025

Fagfélögin (RSÍ, MATVÍS og VM) tóku þann 2. janúar 2025 upp nýjar „Mínar síður“.

Þar er meðal annars hægt að sækja um styrki og sjúkradagpeninga auk þess sem orlofskerfi verður þar opnað þann 9. janúar. Jafnframt er á Mínum síðum hægt að fylgjast með réttindaávinnslu og skilum atvinnurekenda á iðgjöldum.

Hér fyrir neðan má sjá leiðbeiningar vegna notkunar á Mínum síðum. Hér neðst á síðunni má sjá myndband sem sýnir hvernig sótt er um styrki.

On January 2, 2025, the Fagfélögin (RSÍ, MATVÍS and VM) adopted new „My Pages“.

Among other things, it is possible to apply for sickness grants and sickness per diem benefits, and a holiday house system will be opened there on January 9th. In addition, on My Pages it is possible to monitor the accrual of rights and the remittance of contributions by employers.

Below you can see instructions for using My Pages. At the bottom of the page you can see a video showing how to apply for grants (with english subtitles).

Fyrstu skrefin í nýju félagakerfi

Félagsfólk skráir sig inn á Mínar síður af heimasíðu síns félags. Hægt er að nota rafræn skilríki eða auðkennisapp frá Auðkenni.
Í aðalvalmynd hvers og eins má finna yfirlit yfir félagsgjöld, skipt eftir mánuðum og atvinnurekendum. Jafnframt má sjá réttindi í sjóðum og hvernig þau hafa verið nýtt. Í flestum tilvikum er hægt að sækja ítarlegri upplýsingar um hvert atriði. Einnig má skoða orlofskosti, panta og ganga frá greiðslu og sækja um styrki sem eru í boði, bæði í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði.
  1. Hver félagi á sérstakt svæði. Þannig er hægt að sjá alla styrki úr sjúkrasjóði, yfirlit yfir sjúkradagpeninga, orlofsleigur, fræðslustyrki og iðgjaldasögu yfir lengri tíma en birtist í aðalvalmyndinni.
  2. Tungumálafáni sýnir á hvaða tungumáli félaginn skoðar Mínar síður. Það hjálpar starfsfólki að ákveða á hvaða tungumáli til dæmis skeyti til viðkomandi félaga fara. Þegar send eru fjöldaskeyti á margt félagsfólk og þau eru á þremur tungumálum – ræður þessi merking hvaða skeyti hver félagi fær.
  3. Hér er hægt að breyta hluta persónuupplýsinga, svo sem að setja inn eða breyta upplýsingum um símanúmer, netfang og bankareikning. Einnig er hægt að skrá annað póstfang ef félagi hefur aðsetur annars staðar en á lögheimili.
  4. Hér er hlekkur til að bóka orlofsíbúð eða orlofshús. Einnig kemur fram hversu marga leigudaga félagi getur bókað og punktastöðu.
  5. Hér eru hlekkir til að sækja annars vegar um styrk úr sjúkrasjóði og hins vegar sjúkradagpeninga. Einnig kemur hér fram hversu mikil réttindi félagsfólk hefur. Félagi sem er að hefja störf getur verið nokkra mánuði að öðlast 100% rétt.
  6. Hér er hlekkur á umsókn úr menntasjóðum, þar sést í hvaða menntasjóðum félagsmaður á réttindi. Ef félagi á rétt í tveimur menntasjóðum, samtals 100% – leggur félagið réttinn saman til að greiða fullan styrk. Þetta á ekki við um RSÍ.
  7. Hér er flýtisýn á það sem er í gangi hverju sinni – sem sagt tvær síðustu hreyfingar í hverjum flokki í kerfinu.
Að bóka orlofseign í nýju kerfi (opnar 9. janúar): Leiðbeiningar koma hér inn 9. janúar.
Að sækja um styrki úr sjúkrasjóði Í aðalvalmynd, undir „Umsóknir“ má sækja um styrki. Það fyrsta sem þarf að gera er að velja tegund styrks úr felliglugga. Þá birtast upplýsingarnar á skýringarmyndinni. Þar kemur fram, hver er hámarksfjárhæð þessarar styrktegundar, hvaða gögnum þarf að skila og hvaða skilyrði gilda um þennan tiltekna styrk. Þessar upplýsingar eru mismunandi eftir því hvaða styrkur þetta er. Skýringarmyndin hér fyrir neðan sýnir næstu skref. Athugið að hafi atvinnurekandi ekki skilað inn réttum iðgjöldum er hægt að leiðrétta það með því að hlaða upp launaseðli og slá inn iðgjaldafjárhæð. Mistök eða trassaskapur atvinnurekanda á ekki að bitna á félagsmanni. Sjúkradagpeningar Umsóknarform fyrir sjúkradagpeninga lítur að flestu leyti út eins og formið fyrir styrkina. Mestu munar, að skila þarf inn ýmsum viðbótarvottorðum, svo sem læknisvottorði og vottorði atvinnurekanda, auk upplýsinga um persónuafslátt. Umsókn í fræðslusjóð Umsóknarformið fyrir styrki úr fræðslusjóði er í langflestum atriðum sambærilegt við umsóknir úr sjúkrasjóði. Félagsfólk getur átt rétt á styrkjum úr þremur menntasjóðum, eftir því hvaða kjarasamningi þeir starfa samkvæmt. Kerfið velur réttan sjóð. Umsækjandi þarf fyrst að velja tegund styrks úr felliglugga. Næst þarf hann að hlaða upp kvittun og skrá upplýsingar um útgefanda kvittunar. Loks þarf umsækjandi að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir um netfang, símanúmer og bankareikning, til að hægt sé að afgreiða styrkinn. Senda fyrirspurn Fyrir neðan dálkinn með persónuupplýsingum í aðalvalmynd á Mínum síðum má sjá bláan hnapp þar sem hægt er að senda félaginu fyrirspurn. Hægt er að senda inn almenna fyrirspurn til félagsins með því að setja inn titil, slá inn texta og senda. Ef þú hefur verið með eða ert með orlofshúsabókun eða hefur sótt um styrk/i þá getur þú valið viðkomandi atriði áður en fyrirspurnin er send inn
Það getur skipt miklu máli fyrir verkalýðsfélög að vita á hvaða starfsstöðvum félagsfólk vinnur. Bæði eru fyrirtæki og sveitarfélög, orðin stærri en áður var og mörg fyrirtæki hafa margar starfsstöðvar. Á mínum síðum félagsins er auðvelt að skrá starfsstöð og einnig að tilkynna um breytingu á starfsmannaflokk og jafnvel skrá starfsheiti.