540 0100 2f@2f.is Stórhöfða 29-31

Fagfélögin — ekki okkar verðbólga!

Auglýsingaherferðir Fagfélaganna undir slagorðinu „Ekki okkar verðbólga“ eru til þess fallnar að vekja athygli á að launafólk ber ekki ábyrgð á mikilli verðbólgu og háum vöxtum. Verðlag hefur hækkað langt umfram umsamdar launahækkanir. Stjórnvöld og atvinnulífið þurfa að horfa í eigin barm þegar sökudólga fyrir hárri verðbólgu er leitað.

Ráðist var í vel heppnaða auglýsingaherferð undir þessu slagorði í upphafi árs 2024. Því miður er ástæða til að dusta rykið af þessum skilaboðum nú á útmánuðum 2026.

Að Fagfélögunum standa fimm öflug félög og sambönd sem vinna að því sameiginlega markmiði að standa vörð um og berjast fyrir hagsmunum og réttindum félagsfólks. Um leið leitast félögin við að veita félagsfólki, liðlega 15 þúsund manns, fyrsta flokks þjónustu og stuðning. Fagfélögin eru stærstu samtök launafólks á Íslandi í iðn- og tæknigreinum og eiga í náinni samvinnu við ýmis önnur stéttarfélög í tengdum geirum.

Fagfélögin eru:

Pistlar um málefnið:


Um Fagfélögin

Í nóvember 2023 voru liðin fjögur ár frá því félögin fluttu undir eitt þak, á Stórhöfða. Þau hafa allar götur síðan unnið saman við gerð kjarasamninga og með fjölbreyttum hætti samnýtt þann kraft og þá sérþekkingu sem býr í mannauði þessara félaga.

Í dag reka félögin einnig sameiginlega móttöku og þjónustuskrifstofu sem sinnir daglegum erindum félagsfólks. Skrifstofan annast einnig bókhald, félagatal, innheimtu félagsgjalda, umsýslu orlofshúsa, afgreiðslu styrkja og alla almenna skrifstofuvinnu. Þá reka félögin sameiginlegt leigufélag auk þess að reka orlofsíbúðir á höfuðborgarsvæðinu undir einu þaki. Þau standa sameiginlega að öflugu vinnustaðaeftirliti og veita öfluga lögfræðiþjónustu, svo eitthvað sé nefnt.

Þrátt fyrir þessa miklu samvinnu og samnýtingu halda félögin sjálfstæði sínu og eigin ákvörðunarrétti.

Fagfélögin vinna ötullega saman að því að þjónusta félagsfólk og tala máli þeirra út á við. Með samstarfinu hafa félögin öðlast aukinn slagkraft og hæfni til að berjast fyrir hagsmunum sinna félaga.