Um Fagfélögin

Fagfélögin

Sterkari saman

Fagfélögin eru samstarfsvettvangur stéttarfélaga um kjaramál, réttindi og þjónustu. Með sameiginlegu starfsfólki og sérþekkingu nýtast kraftarnir betur, félagsfólki til hagsbóta.

Sagan hófst 2019

Fagfélögin voru stofnuð árið 2019 eftir langan aðdraganda. Samstarfið hefur þróast úr sameiginlegri móttöku og rekstri í víðtæka samvinnu um kjaramál, þjónustu og hagsmunagæslu.

Töluverðar breytingar hafa orðið á samsetningu hópsins frá stofnun. Í dag eru RSÍ – Rafiðnaðarsamband Íslands, MATVÍS – Matvæla- og veitingafélag Íslands, VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna, SVG – Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og FFÍ – Flugfreyjufélag Íslands í Fagfélögunum.

Félögin eru sjálfstæð og taka eigin ákvarðanir. Á vettvangi Fagfélaganna sameina þau krafta, miðla þekkingu og styðja hvert annað í baráttu fyrir bættum kjörum og réttindum.

Samhliða samstarfinu innan Fagfélaganna hefur samstarf við önnur stéttarfélög aukist til muna. Þar má meðal annars nefna samstarf við VR og LÍV í kjarabaráttu.

Stjórn Fagfélaganna er skipuð fulltrúum sem aðildarfélög og sambönd tilnefna hverju sinni.

Samstarf í verki

Sameiginlegt kjarasvið og sérhæft starfsfólk styrkja þjónustuna. Samvinnan nær meðal annars til:

  • Kjarabaráttu, ráðgjafar og lögfræðiþjónustu.
  • Þjónustu við félagsfólk, reksturs sjóða og innheimtu félagsgjalda.
  • Orlofsmála og samnýtingar þjónustukerfa.
  • Fræðslu trúnaðarmanna, námskeiða, funda og ráðstefna.
  • Vinnustaðaeftirlits og réttindagæslu á vinnumarkaði.

Markmiðið er öflugri þjónusta og sterkari rödd út á við. Ekki hika við að hafa samband ef þú þarft aðstoð.

Tölvuteiknuð mynd af fjölbýlishúsinu við Eirhöfða 7
Eirhöfði 7 · Tölvuteiknuð mynd

Sameiginlegt verkefni

Leigufélag Fagfélaganna

RSÍ, MATVÍS og VM standa saman að Leigufélagi Fagfélaganna, sem var stofnað árið 2025. Við stofnun þess voru tíu íbúðir við Eirhöfða 7 í Reykjavík settar í langtímaleigu fyrir félagsfólk félaganna þriggja.

Íbúðirnar voru hluti af sameiginlegum kaupum á 30 íbúðum í húsinu. Hinar tuttugu voru keyptar sem orlofs- og sjúkraíbúðir.

Verkefnið er dæmi um hvernig sameiginlegur styrkur félaganna getur aukið húsnæðisöryggi og eflt þjónustu við félagsfólk.

Nánar um verkefnið

Félögin

Kynntu þér félögin

Ólíkar starfsgreinar, sameiginleg áhersla á kjör, réttindi og þjónustu.

VM

Félag vélstjóra og málmtæknimanna

VM sameinar vélstjóra og málmiðnaðarmenn og vinnur að hagsmunum þeirra í námi og starfi. Starfsgreinarnar eiga margt sameiginlegt, nám þeirra skarast að hluta og félagsfólk starfar iðulega á sömu vinnustöðum.

Nánar um VM

RSÍ

Rafiðnaðarsamband Íslands

RSÍ er landssamband stéttarfélaga í iðn- og tæknistörfum. Sambandið nær meðal annars til rafiðnaðar, raforku, raftækni, miðlunar, útgáfu, upplýsingatækni og skapandi greina.

Nánar um RSÍ

MATVÍS

Matvæla- og veitingafélag Íslands

MATVÍS sameinar launafólk í matvæla- og veitingagreinum. Meginmarkmið félagsins er að bæta kjör og vinna að hagsmunum félagsfólks í þeim fjölbreyttu störfum sem falla undir félagið.

Nánar um MATVÍS

FFÍ

Flugfreyjufélag Íslands

FFÍ er stéttarfélag flugfreyja og flugþjóna á Íslandi. Á vef félagsins finnur félagsfólk upplýsingar um starfsemina, sjóði og réttindi, meðal annars sjúkrasjóð, starfsmenntasjóð og orlofssjóð.

Nánar um FFÍ

SVG

Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur

SVG sameinar sjómenn og vélstjóra sem starfa til sjós og lands. Félagið vinnur að sameiginlegum hagsmunum félagsfólks, kaupum og kjörum, bættum aðbúnaði og réttindum, auk fræðslu- og menningarmála.

Nánar um SVG

WordPress Theme built by Shufflehound.