Saga
Fagfélögin voru stofnuð árið 2019 þegar Rafiðnaðarsamband Íslands, Byggiðn – félag byggingamanna, FIT Félag iðn- og tæknigreina (til 1. feb. 2023), MATVÍS og Samiðn – samband iðnfélaga fluttu í sameiginlegt húsnæði að Stórhöfða 31. Stjórn Húss fagfélaganna er skipuð aðilum sem aðildarfélög og sambönd tilnefna hverju sinni.
Tilgangurinn með samstarfinu er að auka samvinnu á milli aðildarfélaga og sambanda með það markmiðið að auka þjónustu við félagsmenn. Enn fremur að tryggja aukna aðild iðnaðarsamfélagsins að málefnum sem það varðar, svo sem samtöl við stjórnvöld, breiðari ásýnd gagnvart almenningi og sterkari samhljóm í hagsmunamálum út á við.
Í lok árs 2021 var svo stigið enn stærra skref þegar VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna gekk inn í samstarfið sem var þá aukið til muna og tekur nú til þjónustu og afgreiðslu við félagsmenn, bókhald, lögfræðiþjónustu og kjaramál.
Við erum hér fyrir þig!
Helstu verkefni stéttarfélaga er gerð kjarasamninga sem tryggja öllum lágmarksréttindi á vinnumarkaði. Með kjarasamningum er stöðugt unnið að því að verja og auka réttindi fólks. Stéttarfélög sinna auk þess margvíslegri þjónustu við félagsmenn sína. Hjá þeim getur þú fengið upplýsingar og aðstoð vegna launaútreikninga og kjaramála, sótt námsstyrki, leigt orlofshús, fengið greiðslur vegna langvarandi veikinda og stuðning við að koma til vinnu eftir erfið veikindi. Stéttarfélögin veita einnig lögfræðiaðstoð vegna ágreinings við atvinnurekanda.
Ekki hika við að hafa samband ef þú þarft á að halda. Þjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu. Fullum trúnaði er heitið. Við aðhöfumst ekkert án þíns leyfis.
Fagfélögin samanstanda af…
Byggiðn - Félag byggingamanna
Þann 14. desember 2008 sameinuðust Trésmiðafélag Reykjavíkur og Félag byggingamanna Eyjafirði undir nafninu Fagfélagið og starfaði undir því nafni í um 3 ár.
Á aðalfundi félagsins 28. mars 2012 var samþykkt að breyta nafni félagsins í Byggiðn – Félag byggingamanna.
VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna
VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna er meðal stærstu fag- og stéttarfélaga landsins.
Vélstjórar og málmiðnaðarmenn eiga margt sameiginlegt bæði í námi og á vinnumarkaði. Nám þeirra skarast að hluta og málmiðnaðarmenn og vélstjórar starfa iðulega á sömu vinnustöðum.
Matvís - Matvæla- og veitingafélag Íslands
Félag sem sameinar alla launþega í matvæla- og veitingagreinum með það fyrir augum sem höfuðmarkmið að vinna að bættum kjörum og öðru því sem stefnir til hagsbóta fyrir félagsmenn.
RSÍ - Rafiðnaðarsamband íslands
Rafiðnaðarsamband Íslands er landssamband stéttarfélaga sem nær yfir iðn- og tæknistörf í rafiðnaði, raforkuiðnaði, raftækniðnaði, miðlun, útgáfu, upplýsingatækni og skapandi greinum. RSÍ var stofnað árið 1970 af 400 félagsmönnum. Í dag er heildarfjöldi virkra félagsmanna um 6.550 sem skiptast í 8 aðildarfélög.