Afmælisveisla FÍR á Akranesi

Félag íslenskra rafvirkja fagnar 100 ára afmæli sínu á Galito á Akranesi 31. október. Boðsgestum er heimilt að taka með sér einn gest.

Húsið opnar kl. 18 með fordrykk og þriggja rétta kvöldverður verður borinn fram kl. 19. Á matseðlinum eru sjávarréttasúpa, nautalund og volg súkkulaðikaka. Bjór, rauðvín, hvítvín og óáfengir drykkir verða í boði.

Matti Matt og Vignir Snær sjá um veislustjórn og tónlist. Dagskrá lýkur kl. 23.

WordPress Theme built by Shufflehound.